Reikna með að snúa aftur í boltann að námi loknu
Eyjólfur Garðarsson)

Markmaðurinn Bergur Bjartmarsson sem leikið hefur með Fjölni síðastliðin ár er á leið erlendis í nám í 1 ár. Nánar tiltekið til Englands í meistaranám.

Hann mun því ekki spila með Fjölni á næsta leiktímabili en stefnir á að snúa aftur á milli stanganna eftir námið ytra.

"Ég er að fara fara til Englands í meistaranám í 1 ár. Er þar af leiðandi kominn í 1 árs handboltapásu en tel það líklegt að eg haldi áfram í handbolta eftir námið"

Og áfram hélt hann.

"Ég kom til Fjölnis haustið 2021 sem lánsmaður. Markmiðið var alltaf að fara aftur í Fram en félagsskapurinn og stjórnin tók svo vel á móti mér að ekki annað hægt en að skrifa undir hjá félaginu. Ég hef spilað með Fjölni í 5 tímabil og á margar góðar minningar hjá félaginu. Það sem kannski situr eftir er umspilið gegn Víkingi fyrir nokkrum árum og svo auðvitað að fara upp í Olís deildina eftir umspil við Þór. Það var skemmtileg reynsla að spila í Olís deildinni sem hafði verið draumur síðan ég byrjaði að æfa handbolta 8 ára gamall. Handbolti hefur verið stór hluti af mínu lífi mínu lengi og það verður því mikil breyting að „hætta" í boltanum. Mögulega kíki ég á einhver félög þarna úti í London ef boltinn fer aftur að kalla á mig. Ég reikna þó með því að snúa aftur í boltann að námi loknu ef einhver vill fá mig."

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top