Sveinur yfirgefur Mosfellsbæinn
Raggi Óla

Færeyingurinn, Sveinur Ólafsson yfirgefur Aftureldingu í sumar eftir tveggja ára dvöl hjá félaginu. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið.

Sveinur sem er 23 ára, rétthent skytta gekk í raðir Aftureldingar sumarið 2024 eftir að hafa orðið færeyskur meistari með H71. Þar var hann meðal markahæstu manna deildarinnar, í úrvalsliði ársins ásamt því að vera besti leikmaður tímabilsins.

Sveinur fékk hinsvegar aldrei nein almennileg tækifæri undir stjórn Gunnars Magnússonar á sínu fyrsta tímabili en tækifærin voru töluvert meiri undir stjórn Stefáns Árnasonar á þessari leiktíð. Sveinur varð hinsvegar fyrir því óláni að meiðast á miðju tímabili.

Sveinur sagði í samtali við Handkastið að hann væri nú á leið til Danmerkur þar sem hann ætlaði að sameina nám og handboltaiðkun. Sveinur skoraði 24 mörk í 21 leik fyrir Aftureldingu í vetur en liðið féll úr leik í úrslitakeppni Íslandsmótsins eftir oddaleik gegn Haukum í 8-liða úrslitunum.

Afturelding eru í þjálfaraleit eftir að félagið lét Stefán Árnason þjálfara liðsins fara eftir tímabilið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top