Á fimmtugsaldri framlengir við Pick Szeged
Julien Kammerer / DPPI via AFP

Ungverski markvörðurinn, Roland Mikler hefur framlengt samning sinn við OTP Bank-Pick Szeged um eitt ár. Þetta tilkynnti félagið fyrr í dag.

Reynslumikill markvörður heldur þar með áfram ferli sínum hjá ungverska stórliðinu sem verður í eldlínunni í næstu viku í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar þegar liðið mætir Evrópumeisturunum í SC Magdeburg.

Roland Mikler sem verður 42 ára í september á þessu ári hefur leikið með Pick Szeged frá árinu 2019 en þar áður lék hann fimm tímabil með Telekom Veszprém. Frá árunum 2010-2014 lék hann einnig með Pick Szeged en allan sinn feril hefur hann leikið í Ungverjalandi.

„Allir vita hvað félagið í Szeged þýðir fyrir mig og hvað það þýðir að spila fyrir OTP Bank-PICK Szeged. Það er mér og fjölskyldu minni mikil gleði að ég geti haldið áfram ferlinum mínum, verið hér og haldið áfram að leggja mitt af mörkum til velgengninnar. Við elskum að búa hér, tvíburarnir byrja í skóla í haust, svo ég skrifaði undir með ánægju,“ segir Roland Mikler við ungverska miðilinn, Nemzeti Sport.

Mikler hefur átt glæsilegan feril með ungverska landsliðinu. Hann lék sinn fyrsta landsleik fyrir Ungverjaland árið 2004 og hefur spilað meira en 252 landsleiki. Þar að auki tók hann þátt í tveimur Ólympíuleikum, þar á meðal í liðinu sem lenti í fjórða sæti á Ólympíuleikunum í London árið 2012.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top