Arnór Þór Gunnarsson og lærisveinar hans í Bergischer skrifuðu söguna um helgina þegar liðið komst í úrslitin í þýska bikarnum í fyrsta skipti í sögu félagsins. Það gerðu þeir með því að vinna Evrópumeistarana í Magdeburg í vítakastkeppni í undanúrslitunum. Liðið mætti síðan Þýskalandsmeisturunum í úrslitaleiknum og þurftu að játa sig sigraða þar 42-33 eftir að staðan hafi verið 22-17 í hálfleik. ,,Þetta er og var auðvitað mjög stórt fyrir okkur sem félag að hafa fyrst og fremst komist í Final 4," sagði Þórsarinn, Arnór Þór Gunnarsson í samtali við Handkastið. ,,Í 20 ára sögu félagsins er þetta í annað skiptið sem við spilum í Final 4 en í fyrsta skipti sem Bergischer HC kemst í úrslitaleik bikarsins," sagði Arnór Þór en fyrir tíu árum mætti liðið Magdeburg í undanúrslitum en töpuðu þeim leik í framlengingu. ,,Í ár fórum við ekki auðvelda leið til að komast í úrslitaleikinn. Við fórum í erfiðan útileik gegn góðu 2.deildarliði Coburg. Síðan fórum við í tvíframlengdan leik gegn Hannover-Burgdorf og unnum síðan MT Melsungen í 8-liða úrslitunum. Um helgina fórum við svo í framlengdan leik og vítakastkeppni gegn Evrópumeisturunum í Magdeburg fyrir framan 20.000 manns," sagði Arnór sem segir að það hafi verið ólýsanleg upplifun þegar liðið tryggði sér sigurinn í þeim leik eftir vítakastkeppni. Bergischer sem eru nýliðar í þýsku Bundesligunni eru í harðri fallbaráttu en sitja um þessar mundir í 15.sæti deildarinnar með 15 stig, fjórum stigum meira en HSG Wetzlar sem er í 17.sætinu. Leipzig er síðan á botninum með 10 stig. Það var því vitað að úrslitaleikurinn yrði erfiður fyrir liðið eftir langan og strangan leik gegn Magdeburg deginum áður. ,,Við fórum inn í úrslitaleikinn með mikið sjálfstraust og vildum vinna en maður fann eftir fyrri hálfleikinn þrátt fyrir að hann hafi verið jafn að menn voru byrjaðir að þreytast. Berlín notfærði sér það og keyrðu svakalega á okkur og eru verðskuldaðir bikarmeistarar." ,,Þetta er auðvitað mikil upplifun fyrir okkar lið og okkar stuðningsmenn og við erum auðvitað stoltir að hafa unnið silfur," sagði Arnór Þór sem lék með liðinu þegar liðið lék síðast í Final 4 helginni í bikarnum fyrir tíu árum síðan. ,,Við erum með yngsta liðið í Bundesligunni og við þjálfararnir erum virkilega stoltir af þeirra frammistöðu og hvernig þeir nutu sín á stóra sviðinu í Lanxess Arena í Köln," sagði Arnór Þór Gunnarsson að lokum í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.