
ÍR hafa sent frá sér tilkynningu þar sem staðfestar eru þær fregnir að Grétar Áki muni hætta með liðið. Grétar hefur verið í Skógarselinu í tvö ár og þar af eitt ár sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna. Samhliða því þjálfaði hann öflugan þriðja flokk kvenna. Undir stjórn Grétars náði ÍR liðið sínum besta árangri í efstu deild þegar liðið endaði í 4. sæti Olís deildarinnar í vetur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.