
Þrátt fyrir að vera í mikilli fallbaráttu í þýsku Bundesligunni hefur HSG Wetzlar tilkynnt að ungverski landsliðsmarkvörðurinn Laszlo Bartucz gengur í raðir félagsins í sumar eftir eins ársdvöl hjá MT Melsungen. Í tilkynningunni kemur fram að hann gangi í raðir félagsins óháð því í hvaða deild liðið verður á næsta tímabili. Þjálfari HSG Wetzlar er Rúnar Sigtryggsson sem tók við liðinu fyrir áramót. Laszlo Bartucz er 34 ára og verður 35 ára síðar á árinu en hann gekk í raðir MT Melsungen fyrir tímabilið fyrir það hafði hann einungis leikið í heimalandi sínu. Markverðirnir Anadin Suljakovic og Andreas Palicka yfirgefa félagið í lok tímabilsins en Palicka gerði hálfs árs samning við félagið í janúar en gengur í raðir Füchse Berlin í sumar. Bartucz hefur verið í ungverska landsliðinu frá árinu 2015 og spilaði bæði á Heimsmeistaramótinu 2025 og Evrópumeistaramótinu í ár.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.