Fyrrum þjálfari Þórs hættur eftir þriggja mánaða starf
AXEL HEIMKEN / AFP

Fyrrum þjálfari Þórs á Akureyri, Stevce Alusovski, er ekki lengur við stjórnvölinn hjá norður-makedónska meistaraliðinu RK Eurofarm Pelister. Hann tók við starfinu í janúar en dvölin varð stutt, þar sem hann hætti eftir rúmlega þrjá mánuði.

Alusovski er Íslendingum að einhverju leyti kunnugur, enda stýrði hann karlaliði Þórs í um það bil eitt ár á tímabilinu 2021–2022 er Þór lék í Grill66-deildinni. Það þótti gríðarlega áhugaverð ráðning þar sem Alusosvski hafði reynslu af þjálfun liða í Meistaradeild Evrópu. Eftir fyrsta tímabilið sitt með Þór gerði hann nýjan þriggja ára samning við Þór sumarið 2022. Í nóvember sama ár var hann hinsvegar rekinn enda var liðið einungis með fimm stig að loknum sjö umferðum í Grill66-deildinni.

Þar á undan hafði hann stýrt norður-makedónska stórliðinu Vardar Skopje.

Nú hefur hann hins vegar látið af störfum hjá Pelister. Ekki hefur verið gefið upp hvort hann var látinn fara eða hvort hann ákvað sjálfur að hætta, en ljóst er að hann er ekki lengur þjálfari liðsins.

Eurofarm Pelister er í 2.sæti efri hluta deildarinnar með 44 stig jafn mörg stig og Ohrid en átta stigum á eftir toppliði Vardar 1961 þegar fimm umferðir eru eftir. Úlfar Páll Monsi Þórðarson og félagar í Alkaloid eru svo með 40 stig í 4.sæti deildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top