
Íslendingaliðin þrjú í Noregi áttu öll leik í kvöld en þá fór fram annar leikur liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar í Noregi en fastlega var búist við að bæði Elverum og Kolstad færu þægilega áfram. Drammen mætti Runar á útivelli og úr varð mikill markaleikur þar sem heimamenn reyndust sterkari og unnu góðan sigur, 39-35 en Ísak Steinsson fékk tækifæri í markinu en átti erfitt uppdráttar og varði aðeins eitt skot af þeim sautján sem hann fékk á sig eða 6% markvarsla. Liðin mætast nú í oddaleik á laugardagskvöldið á heimavelli Drammen. Deildarmeistarar Elverum tryggðu sig áfram í undanúrslitin með naumum sigri á Fjellhammer, 32-33 en þeir áttu í miklum erfiðleikum í kvöld og voru meðal annars þremur mörkum undir í hálfleik. Tryggvi Þórisson átti fínan leik fyrir Elverum en hann skoraði fjögur mörk úr fimm skotum. Kolstad tryggði sig einnig áfram í undanúrslitin en þeir unnu öruggan útisigur á Nærbø, 24-33 en Íslendingarnir áttu flottan leik fyrir liðið. Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði sex mörk úr sex skotum og bætti við fjórum stoðsendingum, Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fimm mörk úr sjö skotum og Sigurjón Guðmundsson nýtti tækifæri sitt í markinu vel og varði ellefu af þeim tuttugu og sex skotum sem hann fékk á sig eða 42% markvarsla. Úrslit kvöldsins: Runar 39-35 Drammen Fjellhammer 32-33 Elverum Nærbø 24-33 Kolstad

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.