Norðurlöndin: Kristianstad með tap í fyrsta leik í undanúrslitunum
Raggi Óla

Þrjú Íslendingalið voru í eldlínunni í Danmörku og Svíþjóð í kvöld en í Svíþjóð fóru undanúrslitin í úrslitakeppninni karla megin af stað og topp átta umspilið hélt áfram í Danmörku.

Kristianstad tók á móti Alingsås í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum sænsku deildarinnar en úr varð hörkuleikur og komu gestirnir mikið á óvart með því að sækja sigur eftir framlengdan leik, 38-43. Einar Bragi Aðalsteinsson hélt áfram að spila vel fyrir Kristianstad en hann skoraði níu mörk úr sextán skotum og fékk að auki tvær brottvísanir. Næsti leikur liðanna fer fram á miðvikudagskvöldið næstkomandi á heimavelli Alingsås.

Í Danmörku fóru fram tveir leikir en Íslendingaliðin tvö töpuðu bæði sínum leikjum í kvöld. TTH Holstebro mætti Bjerringbro-Silkeborg á útivelli og töpuðu með minnsta mun, 33-32. Jóhannes Berg Andrason skoraði eitt mark úr einu skoti fyrir gestina og fékk að auki eina brottvísun.

Skanderborg tapaði einnig á útivelli í kvöld, fyrir Mors-Thy en lokatölur urðu 35-29 fyrir Mors-Thy. Kristján Örn Kristjánsson, Donni skoraði fimm mörk úr ellefu skotum og gaf eina stoðsendingu fyrir gestina.

Eftir úrslit kvöldsins eru Mors-Thy og Skanderborg jöfn að stigum með sjö stig, Holstebro koma næstir með þrjú stig og Bjerringbro-Silkeborg reka lestina með tvö stig.

Úrslit kvöldsins:

Kristianstad 38-43 Alingsås

Bjerringbro-Silkeborg 33-32 TTH Holstebro

Mors-Thy 35-29 Skanderborg

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top