

Það var Íslendingaslagur í Portúgölsku úrslitakeppninni í dag þegar Benfica tók á móti Sporting. Sporting byrjaði leikinn mun betur og leiddu 12-18 í hálfleik. Þeir héldu síðan áfram að bæta í forskotið og unnu að lokum öruggan 12 marka sigur, 28-40. Stiven Tobar Valencia var ekki í hóp hjá Benfica í dag en Orri Freyr Þorkelsson hafði hægt um sig í liði Sporting í dag og skoraði einungis 1 mark í leiknum. Í síðari leik dagsins í Portúgal mætti Þorsteinn Leó Gunnarsson og félagar hans í Porto liði Águas Santas. Það reyndist engin fyrirstaða fyrir Porto sem unnu öruggan 17 marka sigur, 24-41. Þorsteinn Leó skoraði 2 mörk í leiknum en Porto er í 2.sæti úrslitariðilsins, fimm stigum á eftir Sporting.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.