Það voru heldur betur stórtíðindi að berast frá Póllandi en Talant Dujshebaev er hættur sem þjálfari liðsins þegar rétt rúmur mánuður er eftir af tímabilinu. Þetta tilkynnir pólska félagið á heimasíðu sinni. Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur þessi niðurstaða legið fyrir síðustu daga en félagið reyndi hvað þeir gátu til að sannfæra Dujshebaev um að klára tímabilið. Hann sagði upp starfi sínu á dögunum en málið hefur verið afar viðkvæmt fyrir pólska liðið. Liðið féll á dögunum úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir tap gegn Pick Szeged og þá tapaði liðið gegn Wisla Plock í undanúrslitum pólska bikarsins einnig á dögunum. Liðið er fjórum stigum á eftir Wisla Plock í pólsku úrvalsdeildinni þegar fjórar umferðir eru eftir. Talant Dujshebaev tók við liði Kielce árið 2014 og var því á sínu tólfta tímabili með liðið. Hann tók við franska landsliðinu á dögunum. Félagið tilkynnir að Krzysztof Lijewski taki við sem aðalþjálfari liðsins það sem eftir er tímabilsins og mun leiða liðið í komandi leikjum. Krzysztof Lijewski lék með liðinu frá árunum 2012-2021.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.