Valsmenn unnu fyrsta leikinn þar sem Jón Bjarni sá rautt
Baldur Þorgilsson

Valur tók á móti FH í fyrsta leik úrslita einvígis liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta.

Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og var augljóst frá fyrstu mínútu að mikið var undir. FH náðu tveggja marka forskoti eftir um 20 mínútna leik en Valsmenn voru snöggir að vinna það upp og komast yfir. Staðan var jöfn þegar liðin gengur til hálfleiks 16-16 og var ekkert á milli liðanna.

Valsmenn voru sterkari í upphafi síðari hálfleiks og náðu þriggja marka forskoti, 20-17 strax á upphafsmínútum síðari hálfleiks. Það dró svo til tíðinda á 34 mínútur þegar Jón Bjarni Ólafsson, línumaður FH, fékk að líta beint rautt spjald eftir átök á línunni við Þorgils Jón Svölu Baldursson.

Dómarar leiksins tóku sér góðan tíma til að kíkja yfir brotið í myndbandsupptöku og komust að þeirri niðurstöðu að gefa rautt spjald við litla hrifningu FH-inga í húsinu og heima í stofu. FH voru smá stund að jafna sig á þessu áfalli og náði Valur að komast í fimm marka forystu áður en FH rankaði við sig og minnkaði muninn í 26-25.

Valsmenn voru svo sterkari á lokamínútum leiksins og unnu að lokum fjögurra marka sigur 37-33 í fyrsta leik liðanna og eru því komnir í 1-0 í einvíginu.

Arnór Snær Óskarsson var markahæstur Valsmanna í kvöld og var hreint út sagt frábær með 12 mörk en hjá FH var Kristófer Máni Jónasson, fyrrum leikmaður Vals, markahæstur með 7 mörk.

Næsti leikur liðanna fer fram í Kaplakrika á mánudagskvöldið.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top