Framlengir um 2 ár við uppeldisfélagið

Örvhenta skyttan Hafþór Már Vignisson hefur framlengt samning sinn við uppeldisfélagið sitt Þór Akureyri til næstu tveggja leiktímabila.

Hafþór hefur verið algjör lykilmaður í liði Þórs síðan hann kom á nýjan leik norður eftir veru hjá Stjörnunni og um skeið erlendis í Þýskalandi og Noregi. Leikmaður með góðan leikskilning sem getur einnig leyst miðjustöðuna af hólmi.

Hafþór skoraði 70 mörk í 16 leikjum í vetur fyrir Þór. Missti hann af nokkrum leikjum vegna meiðsla.

"Við hlökkum til að sjá hann áfram í hvítu og rauðu treyjunni" segir í tilkynningunni frá Þór.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top