
Fram hélt síðasta mót vetrarins fyrir iðkendur í 8.flokki karla og kvenna um síðustu helgi en fjögur mót eru haldin fyrir 8.flokk á hverju tímabili. Fjölmörg félög tóku þátt á mótinu sem fór fram alla helgina þar sem ungir og efnilegir iðkendur eru að stíga sín fyrstu skref á ferlinum. Athygli vekur að sum lið léku á mótinu sem nöfn leikmanna í meistaraflokkum félaganna. Mátti þar með sjá lið eins og Valur - Lovísa, Valur - Þórey, Selfoss - Alexander Hrafnkels og Selfoss - Hannes Höskulds. Fram - Möller og Stjarnan - Tandri Konráðsson. Sum félög eru þó ekkert að flækja þetta og nefna liðin eftir tölustöfum og þá skilgreina nokkur lið sig eftir litum. Eitt félag þurfti þó ekki að skilgreina sig meira en bara með nafni félagsins sem vakti þó mikla athygli því á mótinu sendi Íþróttafélagið Garpur lið til keppni. Íþróttafélagið Garpur var stofnað í september 1992 og um er að ræða félag fyrir íbúa í Landhrepp, Holthrepp og Ásahrepp í Rangárvallasýslu. Aðsetur íþróttafélagsins er að Laugalandsskóla í Holtum sem liggur að landveginum suður í Landsveit. Eru flestir iðkendur í Garpi nemenda í Laugalandsskóla í Holtum. Handknattleiksdeild Selfoss hefur verið að hjálpa iðkendum í Garpi að stunda Þjóðaríþróttina og er þjálfari liðsins einnig þjálfari handknattleiksdeildar Selfoss. Liðið leikur í bláum búningum merktir Garpur. Það verður að teljast afar skemmtileg þróun að á Íslandsmótinu í handbolta sé að bætast við nýtt íþróttafélag og útbreiðsluverkefni HSÍ er greinilega að skila árangri.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.