
Framkvæmdastjóri hjá Füchse Berlin, Bob Hanning, slær því föstu að danski handboltamaðurinn Lasse Andersson muni ekki spila í dönsku 1. deildinni ef svo fer að HØJ falli úr dönsku úrvalsdeildinni. Lasse Andersson er leikmaður Berlínarliðsins en gengur í raðir HØJ í sumar. HØJ er hinsvegar í bullandi fallbaráttu um þessar mundir en liðið mun mæta annað hvort Kolding eða Aarhus í umspili um laust sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Andersson er á leið heim til Danmerkur í sumar og á að ganga til liðs við HØJ, en staða liðsins neðst í deildinni hefur skapað óvissu um framtíð hans ef liðið fellur. Bob Hanning segir að samkvæmt dönskum sérfræðingum sé ólíklegt að HØJ falli en ef það gerist muni þeir ræða stöðuna við Andersson. Hins vegar sé eitt alveg ljóst að Lasse Andersson mun undir engum kringumstæðum spila í næst efstu deild í Danmörku. Það skýrist síðar í dag hvort HØJ mæti Kolding eða Aarhus í umspilinu en liðið mætast klukkan 15:00 í dag í þriðja leik einvígsins en staðan er jöfn 1-1.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.