Ein óvæntustu úrslit tímabilsins – Staðan alvarleg
UWE ANSPACH / AFP

Ein óvæntustu úrslit þýsku Bundesligunnar litu dagsins ljós um helgina þegar stórlið THW Kiel gerði jafntefli gegn botnliði Leipzig á heimavelli, 28-28. Blær Hinriksson leikmaður Leipzig skoraði eitt mark í leiknum.

Úrslitin gætu haft verulega áhrif á baráttu Kiel um sæti í Evrópukeppninni á næstu leiktíð og segir Bent Nyegaard handboltasérfræðingur á TV 2 Sport að draumur Kiel um sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð sé gott sem horfinn.

Kiel glímir við meiðsli lykilleikmanna á borð við Emil Madsen og Elias a Skipagøtu. Liðið hefur aðeins unnið tvo af síðustu sjö leikjum sínum í deildinni og situr nú í 5.sæti deildarinnar með 40 stig, tólf stigum á eftir toppliði SC Magdeburg þegar fimm umferðir eru eftir.

,,Kiel gæti endað í þeirri stöðu að þeir spili ekki í Evrópu. Draumurinn um Meistaradeildina er í raun alveg horfinn. Þeir eru í miklum vandræðum og stig á heimavelli gegn Leipzig eru mikil vonbrigði," sagði Nyegaard.

Kiel getur enn tryggt sér þátttöku í Evrópudeildinni á næstu leiktíð en stefnan félagsins hefur verið að komast aftur í Meistaradeildina.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top