FH svaraði fyrir sig í Kaplakrika
Sævar Jónasson

FH tók á móti Val í öðru leik liðanna í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta í Kaplakrika í kvöld.

Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en eftir um 10 mínútna leik tóku FH frumkvæðið og náðu þriggja marka forskoti, 8-5. Valur náði að minnka muninn en náðu þó aldrei að jafna leikinn og FH náði forskotinu aftur og leiddu með þrem mörkum í hálfleik, 18-15.

Varnarleikur FH var frábær í allt kvöld og áttu lykilmenn Valsmanna erfitt með að finna leiðir framhjá varnarmúr þeirra. FH hélt uppteknum hætti í síðari hálfleik og bætti í forskotið jafnt og þétt. Garðar Ingi Sindrason og Ómar Darri Sigurgeirsson voru allt í öllu í sóknarleik FH-inga.

Valsmenn gerðu hvað þeir gátu til að koma til baka en þegar tækifæri gafst á því var það Jón Þórarinn sem lokaði rammanum hjá FH. Lokatölur í kvöld urðu 31-25 sigur FH sem eru búnir að jafna einvígið í 1-1.

Garðar Ingi Sindrason var markahæstur hjá FH í kvöld með 7 mörk en hjá Val var Arnór Snær Óskarsson markahæstur með 4 mörk.

Næsti leikur liðanna fer fram á Hlíðarenda á fimmtudaginn.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top