Jón Bjarni sleppur við bann eftir djók rautt spjald
J.L.Long

Valur og FH mætast í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins í Kaplakrika í kvöld en Valur leiðir í einvíginu eftir sigur í fyrsta leik á heimavelli á föstudaginn. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:30 og verður sýndur í Handboltapassanum.

Eftir jafnan fyrri hálfleik voru Valsmenn sterkari aðilinn í seinni hálfleik og unnu að lokum fjögurra marka sigur 37-33.

Í upphafi seinni hálfleiks var heldur betur umdeilt atvik sem átti sér stað þegar Jón Bjarni Ólafsson leikmaður FH fékk að líta rauða spjaldið frá dómurum leiksins, þeim Bjarka Bóassyni og Gunnari Óla Gústafssyni.

SJÁÐU UMDEILT RAUTT SPJALD JÓNS BJARNA

ÉG FÆ ÞETTA ALDREI TIL AÐ VERA RAUTT SPJALD - Sigursteinn Arndal þjálfari FH var allt annað en ánægður með ákvörðun dómarana í viðtal eftir leik eftir að hafa séð atvikið í sjónvarpinu. Nýttu dómararnir tæknina og fóru í VAR og eftir að hafa horft á atvikið ítrekað var þeirra ákvörðun að gefa Jóni Bjarna rautt spjald.

Aganefnd HSÍ hefur staðfest að Jón Bjarni fær ekki leikbann og verður því löglegur í leiknum í kvöld.

,,Jón Bjarni Ólafsson leikmaður FH hlaut útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í leik Vals og FH í Úrslitakeppni Olís deildar karla þann 24.04.2026.  Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:9 d).  Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins. Aganefnd vekur þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar."

Rætt var um rauða spjaldið og leikinn sjálfan í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top