
Leikur tvö um Íslandsmeistaratitilinn fer fram í Kaplakrika í kvöld þegar FH tekur á móti Val. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og verður í beinni útsendingu í Handboltapassanum. Búast má við fjölmenni en fyrsti leikur liðanna endaði 37-33 sigri Vals í N1-höllinni að Hlíðarenda á föstudagskvöldið. FH-ingar hafa staðið vel að umgjörð um sína heimaleiki og mæting almennt góð í Kaplakrika. Það er þrátt fyrir að aðstæður í Kaplakrika mega muna sinn fífil fegri. En þar hafa verið sömu áhorfendabekkir síðan húsið var vígt árið 1990 og umhverfi í kringum völlinn nokkuð úr sér gengið. En nú horfir til betri tíma því samkvæmt heimildum Handkastsins verður skipt um áhorfendastúkur í Kaplakrika í sumar. Ekki nóg með það heldur verða ný LED auglýsinga skilti tekin í notkun í leiknum í kvöld og leysa af hólmi klassísku skiltin sem hafa prýtt völlinn undanfarin ár. Auk þess er gert ráð fyrir að það komi svalir fyrir ofan áhorfendabekkina til að gera aðgengi áhorfenda á yngri flokka leikjum betri. Þá verður einnig skipt um parket í Kaplakrika í sumar. Fari svo að Valur vinni einvígið 3-0 er ljóst að leikurinn í kvöld verður síðasta tækifærið áhorfenda til að setja á gömlu góðu áhorfendabekkjunum ef planið gengur eftir.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.