Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karla landsliðsins hefur tilkynnt þá 18 leikmenn sem ferðast til Egyptalands og taka þátt í tveimur vináttulandsleikjum gegn Egyptum í maí. Snorri Steinn hafði ýjað að því að töluverðar breytingar verði á landsliðshópnum frá síðasta verkefni er Ísland mætti Svíþjóð í tveimur vináttulandsleikjum hér á landi og hann stóð við þau orð og gerir sjö breytingar á hópnum. ,,Hugurinn hefur verið í heild sinni á öllum hópnum. Það eru miklar breytingar og kannski aðeins fleiri en ég ætlaði mér. Það voru einhverjir sem heltust út á síðustu dögum og kom í ljós að gætu ekki tekið þátt. Hugurinn er núna meira að þeim hóp sem ég er með en þetta snýr líka að því að ég vil fá eitthvað gott úr þessu og ég vil sjá eitthvað sem ég gæti séð fyrir mér að gæti nýst okkur í janúar. Þetta miðast svolítið að því að þetta er ekki bara tilraunastarfsemi til að gera eitthvað. Ég vil að menn stimpli sig inn og minnki bilið í þá lykilmenn sem eru ekki og hafa kannski borið upp leik liðsins að undanförnu," sagði Snorri Steinn í viðtali við Handkastið á skrifstofum HSÍ eftir að hópurinn var tilkynntur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.