Evrópudeildin: Kiel í vandræðum og önnur úrslit fyrri umferðar 8-liða úrslitanna

Þrír leikir fóru fram í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar en leikið er heima og að heiman.

MT Melsungen - Porto 28-23 (12-8)
Reynir Þór Stefánsson og Arnar Freyr Arnarsson höfðu betur gegn Þorsteini Leó Gunnarssyni og félögum í Porto í þessum Íslendingaslag. Arnar Freyr skoraði 4 mörk fyrir Melsungen en Reynir Þór komst ekki á blað. Þorsteini Leó tókst ekki að skora í kvöld þrátt fyrir tvær tilraunir. Melsungen eru því í góðri stöðu með fimm marka forskot fyrir síðari leikinn í Portúgal.

Montpellier - HC Vardar 33-23 (12-10)
Montpellier eru komnir með annan fótinn í úrslitahelgina eftir 10 marka sigur á gamla stórveldinu Vardar. Kyllian Villeminot og Hugo Bryan Monte Dos Santos voru markahæstir fyrir Montpellier með 6 mörk og Remi Desbonnet átti stórgóðan leik í marki franska liðsins með 12 skot varin og 40% hlutfallsmarkvörslu. Uros Mitrovic og Joao Pedro Francisci da Silva voru markahæstir fyrir Vardar með 6 mörk hvor.

RK Nexe - Kiel 33-30 (16-13)
Þýska stórliðið Kiel eru í vandræðum eftir þriggja marka tap gegn RK Nexe. Tin Lucin var markahæstur fyrir Nexe með 9 mörk og Harald Reinkind og Rasmus Ankermann voru markahæstir hjá Kiel með 5 mörk hvor.

Síðasti leikur fyrri umferðarinnar í 8-liða úrslitunum fer svo fram í kvöld þegar Flensburg fá lærisveina Heiðmars Felixsonar í heimsókn. Svavar Pétursson og Sigurður Þrastarson munu svo dæma þann leik.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top