
Garðar Ingi Sindrason var einn af hetjum FH í sex marka sigri liðsins gegn Val í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitlinn í fyrrakvöld. Liðin mætast í þriðja sinn í Valsheimilinu annað kvöld en staðan í einvíginu er jöfn 1-1. Rætt var um frammistöðu Garðars Inga í Handboltahöllinni í Sjónvarpi Símans eftir leikinn. Þá var einnig rætt um frábæra frammistöðu Garðars Inga í uppgjörsþætti Handkastsins strax að leik loknum. ,,FH-ingar eru búnir að jafna þetta einvígi, þeir unnu öruggan sigur 31-25. Garðar Ingi Sindrason hann hefur alveg verið að mæta til leiks en hann var svakalegur og FH-ingar náðu undirtökunum strax í leiknum," sagði Hörður Magnússon þáttastjórnandi Handboltahallarinnar. ,,Maður sá það frá fyrstu mínútunum að Garðar var mættur og klár. Hann var aggressívur og náð að búa til góð færi og skora. Þá náði hann Þorgils útaf í tvær mínútur, þetta var allt á fyrstu mínútunum. Hann var frábær í þessum leik, við vorum ekki ánægð með hann í síðasta leik og hann hefur átt aðeins inni í úrslitakeppninni en þessi leikur var frábær hjá honum. Hann leiddi liðið og sýndi að hann er tilbúinn að vera leiðtoginn," sagði Rakel Dögg Bragadóttir meðal annars um frammistöðu Garðars Inga. Garðar Ingi skoraði sjö mörk í leiknum og gaf sex stoðsendingar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.