Hannover kaupir þýskan landsliðsmann
JAN WOITAS / dpa Picture-Alliance via AFP

Þýski landsliðsmaðurinn Sebastian Heymann gengur til liðs við Hannover-Burgdorf í sumar frá Rhein Neckar Löwen.

Heymann hafði gert samning við Hannover-Burgdorf sem átti að taka gildi sumarið 2027 en nú hefur Hannover-Burgdorf keypt upp síðasta árs samning Heymann við Löwen. Hann verður því liðsfélagi Sigalda Björns Guðjónssonar sem gengur einnig í raðir Hannover Burgdorf í sumar frá Kolstad.

Heymann semur við Hannover til þriggja ára en Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari félagsins.

,,Það er enginn vafi á því að mér hefur liðið mjög vel hjá Löwen frá fyrsta degi. Ég er afar þakklátur fyrir tímann minn hér. En til að ná mínum persónulegu markmiðum er mikilvægt fyrir mig að fá meiri spilatíma í Bundesligunni aftur," sagði Sebastian Heymann.

Heymann er á sinu öðru ári hjá Löwen en hann gekk í raðir félagsins sumarið 2024 eftir átta ár hjá Göppingen.

Í vikunni greindi Handkastið frá því að Elvar Örn Jónsson leikmaður Magdeburg væri á blaði hjá Rhein Neckar Löwen.

Verður Elvar Örn liðsfélagi Hauks?

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top