Meistaradeildin: Jafntefli í Portúgal og stórsigur Magdeburg
Ronny Hartmann / AFP

Tveir leikir fóru fram í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Leikið er heima og heiman í 8-liða úrslitunum.

Pick Szeged - Magdeburg 28-35 (14-15)
Magdeburg vann 7 marka sigur í íslendingaslag og standa því vel að vígi fyrir seinni leikinn sem verður í Þýskalandi eftir viku. Janus Daði Smárason fór mikinn í sóknarleik Pick Szeged og skoraði 5 mörk. Gísli Þorgeir Kristjánsson var markahæstur ásamt Albin Lagergren í liði Magdeburg með 7 mörk hvor. Ómar Ingi Magnússon skoraði 4 mörk en Elvar Örn Jónsson komst ekki á blað.

Sporting - Álaborg 31-31 (16-16)
Það var allt í járnum hjá Orra Frey Þorkelssyni og félögum í Sporting þegar liðið fékk Álaborg í heimsókn. Orri Freyr skoraði 2 mörk í kvöld. Það er því allt opið fyrir síðari leikinn í Danmörku.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top