Nú á dögunum tilkynnti Grótta nýjan þjálfara til leiks hjá meistaraflokki karla. En eins og kunnugt er hættu þeir Davíð Örn Hlöðversson og Lárus Gunnarsson sem þjálfarar liðsins eftir að liðið datt út úr umspilinu við Hörð frá Ísafirði. Eftir þónokkra leit hjá Gróttu mönnum var Andri Sigfússon á endanum ráðinn þjálfari liðsins. Andri er uppalinn Gróttumaður. Fæddur 1985 og hóf ungur að æfa handknattleik hjá félaginu. Spilaði hann upp alla yngri flokkana hjá félaginu og einnig nokkur ár með meistaraflokki. Var hann lunkinn og útsjónarsamur leikstjórnandi með fín smuguskot. Árið 2002 hóf hann þjálfun hjá félaginu og hefur hann komið að þjálfun allflestra flokka hjá félaginu öll þessi ár. Meðal annars sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks hjá Gunnari Andréssyni fyrir rúmum áratug. Einnig þjálfaði hann yngri flokka 1 ár hjá Víkingi og svo 3 ár hjá Fjölni, þar á meðal sem yfirþjálfari yngri flokka áður en hann sneri aftur til Gróttu sumarið 2021. Auk þess var hann einnig íþróttastjóri félagsins um 4 ára skeið og hefur líka sinnt starfi yfirþjálfara yngri flokka hjá félaginu sem hann hefur gert síðastliðin ár. Um tíma var hann einnig verkefnastjóri handknattleiksdeildar Gróttu þannig að hann hefur verið maður margra hatta. Við heyrðum aðeins í Andra og spurðum hann aðeins út í nýja starfið. Til hamingju með nýja starfið Andri. Átti þetta sér langan aðdraganda og þurftirðu að hugsa þig vel um? Aðdragandinn að ráðningunni var ekki langur en stjórn og mig langaði að vera með allt þjálfarateymið klárt áður en tilkynningin færi í loftið. Að lokum ákváðum við að gera það í sitt hvoru lagi. Umhugsunarfresturinn var stuttur að ráðningunni en aðalatriðið var að ég þurfti að gera upp með mér hverju ég þyrfti að fórna í núverandi störfum til að geta lagt allt í þjálfunina á Gróttuliðinu. Þjálfarar meistaraflokks kvenna eru uppaldir í félaginu, fyrrverandi þjálfarar mfl karla eru uppaldir og þú líka. Flestir yngri flokka þjálfarar hjá félaginu eru uppaldir. Planið er væntanlega að keyra liðið áfram á nánast eingöngu uppöldum leikmönnum eða hvað? Það er búið að vera mikil og góð uppbygging í starfi yngri flokka undanfarin ár. Afraksturinn er að margir ungir og efnilegir leikmenn úr okkar yngri flokka starfi eru að leika stór hlutverk með meistaraflokkunum okkar. Planið er ekki endilega að keyra eingöngu á uppöldum leikmönnum. Við keyrum á því liði sem við treystum til að taka liðið á næsta skref hverju sinni. Við erum með marga frábæra leikmenn sem koma úr yngri flokkum okkar og við munum stóla á þá. Við erum líka með leikmenn sem koma annars staðar frá og hafa aðlagast okkar leik og hjálpað okkur mikið. Við munum styrkja leikmannahópinn fyrir komandi átök á næsta tímabili. Leggst þetta fyrsta aðalþjálfara starf í mfl ekki bara mjög vel í þig og þú fullur tilhlökkunar að hefja störf? Hvað eigum við von á að sjá næsta vetur frá Gróttu? Ég er fullur tilhlökkunar fyrir komandi vetri. Þó að þetta sé mitt fyrsta aðalþjálfarastarf í meistaraflokki þá hef ég verið í kringum marga frábæra þjálfara í gegnum tíðina. Þá reynslu ætla ég að nota til að hjálpa leikmönnum að bæta sinn leik og liðinu til að taka næstu skref. Gróttuliðið verður vel mannað og verður þekkt fyrir mikla baráttu og hraðan en agaðan leik. Megum við eiga von á að sjá einhverja nýja leikmenn koma á næstu dögum og vikum? Leikmannamál eru í fullum gangi. Vonandi verður hægt að tilkynna einhverja fyrir eða um helgina. Það er ljóst að liðið þarf að sækja nokkra leikmenn í stað þeirra sem hverfa á önnur mið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.