Heimavöllurinn stóð fyrir sínu í kvöld
(Baldur Þorgilsson)

Valur tók á móti FH í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta á Hlíðarenda í kvöld. Staðan í einvígi liðanna var 1-1 fyrir leik kvöldsins.

Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiksins en FH-ingar náðu að slíta sig þrem mörkum frá Valsmönnum um miðbik hálfleiksins, 6-9. Valsmenn tóku leikhlé og náðu að snúa þessu sér í vil og voru komnir 11-10 yfir nokkrum mínútum síðar. Á 28.mínútu leiksins var óhugnalegt atvik þegar Magnús Óli Magnússon fékk þungt hökk á höfuðið og lá óvígur eftir. Magnús Óli var borinn útaf á börum og var kallað á sjúkrabíl en um algjört óviljaverk var að ræða í þessu árekstri.

Valsmenn voru skrefinu á undan það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og leiddu með einu marki, 18-17, þegar liðin gengur til búningsherbergja.

FH byrjaði síðari hálfleik betur og náðu tveggja marka forystu, 21-23. Þá tók við frábær kafli hjá Valsmönnum þar sem vörnin þeirra small saman og áttu FH-ingar erfitt með að finna leiðir framhjá henni og breyttu Valsmenn stöðunni í 28-25.

FH reyndu hvað þeir gátu að jafna leikinn og náðu að minnka muninn í eitt mark þegar um 30 sekúndur voru eftir en þá skoraði Arnór Snær Óskarsson mark og tryggði tveggja marka sigur Valsmanna sem eru komnir 2-1 yfir í einvíginu og geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á mánudagskvöldið í Kaplakrika.

Bjarni I Selvindi var frábær í liði Valsmanna í kvöld og skoraði 6 mörk en hjá FH var Ómar Darri Sigurgeirsson allt í öllu sóknarlega og var markahæstur í liði FH með 9 mörk.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top