Tveir leikir fóru fram í Meistaradeildinni í kvöld. Um er að ræða fyrri viðureignirnar í 8-liða úrslitum. Veszprém - Fuchse Berlin 35-34 (17-20) HBC Nantes - Barca 30-32 (18-19) Bæði þessi einvígi eru þó galopin fyrir síðari viðureigninar og verður spennandi að sjá hvaða lið bóka sæti í úrslitahelginni í júní.
Draumur Bjarka Más Elíssonar um að spila í úrslitahelginni í Köln lifir enn eftir eins marks sigur á Fuchse Berlin 35-34. Bjarki komst ekki á blað í leiknum en Ivan Martinovic og Hugo Descat voru markahæstir fyrir Veszprém með 8 mörk hvor. Mathias Gidsel var sem oft áður markahæstur hjá Berlínarrefunum með 13 mörk.
Viktor Gísli Hallgrímsson varði 6 skot og var með 27% hlutfallsmarkvörslu í tveggja marka sigri á Nantes í kvöld. Aleix Gómez var markahæstur hjá Barca með 9 mörk. Kauldi Odriozola var markahæstur hjá Nantes með 6 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.