Sagosen bræðurnir saman í norska landsliðinu í fyrsta sinn
LISELOTTE SABROE / Ritzau Scanpix via AFP

Jonas Wille þjálfari norska landsliðsins hefur valið sinn síðasta landsliðshóp í bili í það minnsta en hann hættir með norska landsliðið eftir komandi verkefni.

Tyrkir bíða Noregs í umspilsleikjum um laust sæti á HM 2027 og í hópnum eru bræðurnir Sander Sagosen og Ciljan Sagosen.

Ciljan sem er 18 ára og tólf árum yngri en eldri bróðir sinn, leikur með Bergen í norsku úrvalsdeildinni. Hann er eini nýliðinn í hópnum. Þá snýr hægri skyttan Magnus Abelvik Rød leikmaður Pick Szeged til baka í landsliðshópinn eftir meiðsli.

Hinn 18 ára Ciljan Sagosen var í viðtali við norsku sjónvarpsstöðina TV 2 eftir að hópurinn hafi verið tilkynntur. Þar viðurkenndi hann að hann væri ekki alveg búinn að átta sig á þessu ennþá.

,,Ég hefði aldrei trúað því að þetta myndi gerast svona fljótt, þetta er draumur. Ég var að vonast eftir því að Sander myndi spila með landsliðinu í fimm ár í viðbót," sagði Ciljan við TV 2.

„Þetta er frábært og algjör draumur. Ég tel hann eiga þetta fyllilega skilið þrátt fyrir að ég sé auðvitað ekki hlutlaus," sagði Sander og benti á að þetta væri skemmtilegt fyrir alla fjölskylduna. Ég fékk skilaboð frá pabba um helgina að við bræðurnir myndum spila saman með landsliðinu. Ég var fljótur að hringja heim til þess að fá það á hreint," sagði Sander Sagosen leikmaður Álaborgar við TV 2.

Norski hópurinn fyrir leikina gegn Tyrklandi má sjá hér að neðan:

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top