Sjáðu höfuðhöggið sem Magnús Óli fékk – Endaði upp á spítala
Egill Bjarni Friðjónsson

Magnús Óli Magnússon leikmaður Vals var borinn af velli undir lok fyrri hálfleiks í tveggja marka sigri liðsins gegn FH í þriðja leik Vals og FH í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í kvöld. Valur hafði betur í leiknum 32-30 og leiðir því í einvíginu 2-1.

Magnús Óli fékk þungt högg þegar höfuð hans lenti á öxlinni á Ingvari Degi Gunnarssyni varnarmanni FH og lá eftir á vellinum í dágóðan tíma.

Magnús Óli hafði skorað tvö mörk fyrir Val í leiknum áður en hann varð fyrir þessu höggi en hann kom ekkert meira við sögu í leiknum. Magnús Óli var borinn af velli á sjúkrabörum eftir að sjúkraþjálfari Vals hafði skoðað hann á vellinum.

Samkvæmt heimildum Handkatsins var Magnús Óli fluttur á sjúkrahús í kjölfarið til frekari skoðana.

Á einhvern ótrúlegan hátt stöðvuðu dómarapar leiksins, Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson ekki leikinn og keyrðu FH-ingar upp í sókn og skoruðu mark áður en dómarnir stöðvuðu leikinn.

Hingað til hefur það verið vani hjá dómurum að stöðva leikinn strax þegar um er að ræða höfuðhögg.

HEIMAVÖLLURINN STÓÐ FYRIR SÍNU Í KVÖLD

Hér að neðan er hægt að sjá atvikið en Handkastið sendir Magnúsi Óla batakveðjur.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top