Alfreð hefur valið þýska landsliðshópinn sem mætir Dönum
UWE ANSPACH / AFP

Alfreð Gíslason þjálfari þýska landsliðsins hefur valið 17 leikmenn sem taka þátt í tveimur vináttulandsleikjum gegn Danmörku í maí.

Fyrri leikurinn fer fram í Royal Arena í Kaupmannahöfn 15. maí og seinni leikurinn í Lanxess Arena í Köln 17. maí. Alfreð velur tvo nýliða í hópinn að þessu sinni.

Nýliðarnir eru þeir Moritz Sauter samherji Einars Þorsteins Ólafssonar hjá HSV Hamburg og Vincent Büchner leikmaður Eisenach.

Þjóðverjar verða án þeirra Jannik Kohlbacher, Lukas Mertens, Rune Dahmke og Julian Köster sem allir eru að glíma við meiðsli. Juri Knorr er sem fyrr eini leikmaður þýska landsliðsins sem leikur utan Þýskalands en hann er á sínu fyrsta tímabili með Álaborg.

Þýski hópurinn:

Markmenn:
David Späth (Rhein-Neckar Löwen)
Andreas Wolff (THW Kiel)

Útileikmenn:
Vincent Büchner (ThSV Eisenach)
Tim Freihöfer (Füchse Berlín)
Mathis Häseler (VfL Gummersbach)
Lukas Zerbe (THW Kiel)
Marko Grgic (SG Flensburg-Handewitt)
Tom Kiesler (VfL Gummersbach)
Juri Knorr (Aalborg Håndbold)
Matthes Langhoff (Füchse Berlín)
Nils Lichtlein (Füchse Berlín)
Moritz Sauter (HSV Hamburg)
Miro Schluroff (VfL Gummersbach)
Franz Semper (SC DHfK Leipzig)
Renars Uscins (TSV Hannover-Burgdorf)
Justus Fischer (TSV Hannover-Burgdorf)
Johannes Golla (SG Flensburg-Handewitt)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top