Fyrri leikir 8-liða úrslita Meistaradeildarinnar fóru fram í vikunni þar sem fimm Íslendingalið voru í eldlínunni. Magdeburg stendur best að vígi fyrir seinni leikina eftir sjö marka útisigur gegn Pick Szeged í Ungverjalandi 28-35. Í hinum þremur einvígjunum er mikil spenna fyrir seinni leikina. Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar hans gerðu jafntefli á heimavelli gegn Álaborg. Bjarki Már Elísson og félagar hans í Veszprém unnu eins marks sigur gegn Füchse Berlin á heimavelli og þá vann Viktor Gísli og liðsfélagar hans í Barcelona tveggja marka útisigur gegn Nantes. Hér að neðan má sjá hápunktana úr leikjum gærkvöldsins. Pick Szeged - Magdeburg 28-35 Sporting - Álaborg 31-31 Veszprém - Fuchse Berlín 35-34 Nantes - Barca 30-32

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.