Norðurlöndin: Holstebro ennþá í möguleika á sæti í undanúrslitin
Tvis Holstebro

Einn leikur fór fram í Danmörku í kvöld en lærisveinar Arnórs Atlasonar í TTH Holstebro tóku á móti Mors-Thy í úrslitakeppninni en heimamenn urðu að vinna leikinn til að eygja möguleika á sæti í undanúrslitin en efstu tvö liðin í riðlinum komast áfram en fyrir leik voru Holstebro í þriðja sæti og Mors-Thy í öðru sætinu.

Holstebro tókst ætlunarverk sitt og vann nauman og sterkan sigur, 32-30 og eru því núna tveimur stigum á eftir Mors-Thy þegar bæði lið eiga einn leik eftir. Jóhannes Berg Andrason skoraði eitt mark úr þremur skotum fyrir liðið.

Úrslit kvöldsins:

TTH Holstebro 32-30 Mors-Thy

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top