Það voru ótrúlegar senur í úrslitakeppninni í Svíþjóð á miðvikudagskvöldið þegar Alingsås mætti Einari Braga Aðalsteinssyni og félögum í Kristianstad í öðrum leik liðanna í undanúrslitum um sænska meistaratitilinn. Kristianstad tapaði í annað sinn eftir framlengingu gegn Alingsås, en í þetta sinn urðu lokatölurnar 37-35 fyrir Alingsås. Staðan er því orðin 2-0 fyrir Alingsås sem verða teljast óvænt tíðindi en Kristianstad eru deildarmeistarar á meðan Alingsås endaði í fimmta sæti deildarinnar. Einar Bragi Aðalsteinsson sem var á dögunum valinn í íslenska landsliðshópinn átti flottan leik fyrir gestina en hann skoraði sex mörk úr átta skotum. Það voru heldur betur senur á lokamínútum leiksins en Alingsås voru 31-27 yfir þegar rúmlega ein og hálf mínúta lifðu leiks. En þá tók við ótrúleg endurkoma Kristianstad sem jöfnuðu leikinn í 31-31 og knúðu fram framlengingu sem þeir síðan töpuðu í. Hægt er að sjá endurkomu Kristianstad hér að neðan. Sjón er sögu ríkari. Handboll… 😍 pic.twitter.com/3WFncan2W1

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.