
Skanderborg tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitunum í Dönsku úrvalsdeildinni þegar liðið vann öruggan sigur á Bjerringbro-Silkeborg, 35-28. Kristján Örn Kristjánsson, Donni var sem fyrr í liði heimamanna en hann skoraði sjö mörk úr fjórtán skotum og var næstmarkahæstur í liðinu en Emil Lærke skoraði átta mörk. Liðið er núna komið með níu stig og er í fyrsta sæti í riðlinum sínum, tveimur stigum á undan Mors-Thy og fjórum stigum á undan Holstebro þegar ein umferð er eftir. Í hinum riðlinum eru Álaborg og GOG bæði komin í undanúrslitin þrátt fyrir að ein umferð sé eftir en Álaborg eru með tíu stig og GOG eru með sjö á meðan Fredericia er með fjögur og geta því ekki náð GOG. Úrslit kvöldsins: Skanderborg 35-28 Bjerringbro-Silkeborg

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.