Thea Imani til Craiova

Thea Imanu Sturludóttir gengur til liðs við SCM Craiova í Rúmeníu. Liðið er sem stendur í 9. sæti í rúmensku deildinni og Florentina Stanciu, sem spilaði lengi með Stjörnunni hérlendis er aðstoðarþjálfari liðsins.

Liðið vann EHF bikarinn tímabilið 2017-2018 og vann þá stórlið Vipers Kristiansand frá Noregi í úrslitarimmunni. Florentina Stanciu stóð þá vaktina í marki Craiova.

Thea skrifar undir samning til ársins 2028 og það verður spennandi að sjá Theu fóta sig í rúmensku deildinni. Handkastið óskar Theu alls hins besta með vistaskiptin.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top