

30.Umferð þýsku úrvalsdeildarinnar lauk í gær er einn leikur fóru fram. Magdeburg situr á toppi deildarinnar með sjö stiga forskot á lið Flensburg sem situr í öðru sæti. Að vana gefur Daikin handball út lið umferðarinnar og lítur það svona út: Tin Herberg(Erlangen) Tin Herberg markvörður Erlangan átti fínan leik er lið hans tapaði gegn Leizig. Herberg varði 14 skot sem samsvaraði 32,6 % hlutfallsmarkvörslu. Noah Beyer(Bergischer) Noah Beyer lærisveinn Arnórs Þórs í Bergischer átti glæsilegan leik er lið hans sigraði Hannover með eins marks mun. Beyer skoraði 8 mörk í leiknum. Sören Steinhaus(Bergischer) Sören Steinhaus lærisveinn Arnórs Þórs í Bergischer átti glæsilegan leik er lið hans sigraði Hannover með eins marks mun. Steinhaus skoraði 10 mörk ásamt því að hafa gefið 5 stoðsendingar. Dean Bombac(Leipzig) Dean Bombac leikmaður Leipzig átti góðan leik er Leipzig vann góðan sigur á Erlangan. Bombac skoraði 7 mörk auk þess að hafa lagt upp 7 mörk. Niklas Theiss(Wetzlar)D Niklas Theiss leikmaður Wetzlar átti góðan leik er lið hans vann Kiel. Theiss skoraði 6 mörk ásamt því að hafa gefið 4 stoðsendingar. Tristan Kirschner(Wetzlar) Tristan Kirschner hægra hornamaður Wetzlar átti góðan leik er lið hans vann Kiel. Kirschner skoraði 8 mörk úr jafn mörgum tilraunum. Lukas Laube(Kiel) Lukas Laube línumaður Kiel átti góðan leik er lið hans tapaði gegn Wetzlar. Laube skoraði 5 mörk fyrir Kiel.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.