Hægri hornamaðurinn og Selfyssingurinn Sæþór Atlason hefur verið í herbúðum Gróttu undanfarin ár. Sæþór skoraði 81 mörk í vetur í 22 leikjum en Gróttu liðið var aðeins hársbreidd frá því að fara upp í Olís deildina en tapaði svo 2-0 á móti Herði í umspilinu. Við heyrðum aðeins í Sæþóri og spurðum hann hvað hann ætlaði sér að gera á næsta tímabili. "Bæði Þór og KA höfðu áhuga á að fá mig en ég gat ekki tekið þeim tilboðum sem ég fékk að norðan. Grótta var tilbúið að gera ansi margt til að halda mér áfram. En ég og kærastan höfum ákveðið að flytja á Selfoss. Ég er búinn að vera að tala við stjórn Selfoss og það eru 99% líkur að ég fari þangað" sagði Sæþór Atlason.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.