Evrópudeildin: Flensburg, Kiel, Melsungen og Montpellier í final four
Sævar Jónasson)

Fjórir leikir fóru fram í Evrópudeildinni í kvöld en um síðari viðureignirnar í 8-liða úrslitunum var að ræða og nú er ljóst hvaða lið NE þátt í final four helginni sem haldin verður í Hamburg.

Hannover - Flensburg 35-43 (20-22)
Heiðmar Felixson og lærisveinum hans í Hannover tókst ekki að halda aftur af Flensburg í kvöld. Flensburg setti um leið markamet en ekkert lið hefur skorað jafn mörg mörk leik í 8-liða úrslitum keppninnar né í einvíginu sjálfu. Emil Jakobsen var markahæstur í Flensburg með 10 mörk og Leif Tissier skoraði sömuleiðis 10 mörk fyrir Hannover.

THW Kiel - RK Nexe 30-27 (17-15) 34-29 eftir vítakeppni
Kiel voru í vandræðum með RK Nexe en þeir höfðu tapað fyrri leiknum með þremur mörkum og tókst ekki að vinna stærra í kvöld. Því þurfti að grípa til vítakastkeppni, þar sem þýska stórliðið mátti þakka Wolff og Vargas markmönnum liðsins. Eric Johansson og Lukas Zerbe voru markahæstir hjá Kiel með 10 mörk hvor og Tin Lucin var markahæstur hjá RK Nexe með 10 mörk.

FC Porto - Melsungen 23-19 (12-9)
Melsungen voru stálheppnir þegar Rubén Marchán skoraði nítjánda mark Melsungen 45 sekúndum fyrir leikslok og tryggði þeim farseðilinn á final four helgina eftir að hafa unnið fyrri leikinn 28-23. Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði 3 mörk fyrir Porto. Arnar Freyr Arnarson skoraði 1 mark fyrir Melsungen og Reynir Þór Stefánsson komst ekki á blað.

HC Vardar - Montpellier 27-24 (17-12)
Montpellier komast áfram í final four þrátt fyrir tap gegn Vardar í kvöld eftir að hafa unnið fyrri leikinn 33-23. Jaka Malus var markahæstur hjá Vardar með 6 mörk og þeir Kyllian Villeminot, Benjamin Richert og Leo Plantin skoruðu allir 5 mörk fyrir Montpellier. Það var hinsvegar ljótt brot Uros Mitrovic á Valentin Porte sem setti svip sinn á leikinn en Porte lá alblóðugur eftir atlögu Uros sem sjá má hér að neðan.

Dregið verður í viðureignir final four föstudaginn 8. maí nk. kl. 9 að íslenskum tíma og streymt verður beint frá dráttinum á www.ehftv.com.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top