
Franski línumaðurinn, Cédric Sorhaindo hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna 41 árs að aldri. Þetta tilkynnti leikmaðurinn á dögunum. Sorhaindo verður 42 ára í júní í næsta mánuði en hann hefur leikið með Besiktas í Tyrklandi síðustu tvö tímabil. Á ferlinum lék hann 220 landsleiki með franska landsliðinu. Hann vann til sjö gull verðlauna með franska landsliðinu á stórmótum. Ólympíugull í London 2012, fjögur gullverðlaun á HM og tvívegis varð hann Evrópumeistari. Þá vann hann til silfurverðlauna einu sinni og tvívegis til bronsverðlauna. Á ferlinum kom hann víða við, hann hóf ferilinn með La Gauloise de Trinité. Þá lék hann með Angers, Paris Saint Germain og Toulouse. Þá lék hann ellefu tímabil með Barcelona á árunum 2010-2021, Dinamo Bucuresti á árunum 2021-2023 og svo loks Besiktas síðustu tvö tímabil.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.