
Óðinn Þór Ríkharðsson fær nýjan þjálfara til liðs við sig í sumar hjá svissneska félaginu Kadetten Schaffhausen. Sá er Norðmaðurinn Jonas Wille, 49 ára, sem lætur af störfum sem landsliðsþjálfari Noregs eftir að hafa stýrt liðinu á fimm stórmótum. Wille tekur við starfinu af Hrvoje Horvat, samkvæmt tilkynningu frá félaginu. Óðinn hefur gegnt lykilhlutverki hjá svissnesku meisturunum undanfarin ár og er samningsbundinn félaginu til ársins 2030. Hann hefur orðið meistari með liðinu þrjú ár í röð og átti stóran þátt í að tryggja því sæti í úrslitaeinvíginu á ný um helgina. Handkastið greindi frá því á dögunum að Jonas Wille væri að fara taka við liðinu og Kadetten staðfesti það síðan í vikunni. Jonas Wille hafði verið orðaður við þjálfarastarfið hjá danska úrvalsdeildarliðinu HØJ Elite. Í mars var greint frá því að Wille myndi hætta með norska landsliðið í sumar en áður mun hann stýra því í umspilsleikjum HM gegn Tyrklandi núna í maí. Norska sambandið hefur ekki enn tilkynnt hver tekur við liðinu af Jonas Wille.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.