Norðurlöndin: Kolstad jafnaði metin gegn Bergen
Ruben De La Rosa / NurPhoto via AFP

Einn leikur fór fram á Norðurlöndunum í kvöld en Kolstad tókst að jafna metin í undanúrslitunum í Norsku úrvalsdeildinni með sigri á Bergen á útivelli.

Eftir óvæntan tap í fyrsta leik liðanna var mikilvægt fyrir Kolstad að sækja sigurinn gegn Bergen á útivelli í kvöld. Það tókst en lokatölur urðu 30-33 fyrir gestina. Íslendingarnir voru atkvæðamiklir að venju en Sigurjón Guðmundsson var í marki liðsins meirihluta leiksins og varði sex skot af þeim tuttugu og níu sem hann fékk á sig eða 21% markvarsla. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði ekki mark að þessu sinni en fékk þó eina brottvísun. Benedikt Gunnar Óskarsson var sem fyrr öflugur í sókninni en hann skoraði þrjú mörk úr fimm skotum en gaf átta stoðsendingar.

Næsti leikur liðanna fer fram á heimavelli Kolstad næstkomandi laugardag.

Úrslit kvöldsins:

Bergen 30-33 Kolstad

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top