Var ekki að semja við Aftureldingu út af þjálfaranum
Sævar Jónsson

Selfyssingurinn, Hans Jörgen Ólafsson gekk á dögunum í raðir Aftureldingar í Olís-deild karla eftir tveggja ára dvöl hjá Stjörnunni.

Hans Jörgen var markahæsti leikmaður Stjörnunnar á tímabilinu og var einnig í lykilhlutverki í varnarleik liðsins sem endaði í 11.sæti deildarinnar og tryggði veru sína í deildinni eftir sigur í umspili.

,,Tilfinningin að vera kominn í Aftureldingu er mjög góð. Ég er spenntur fyrir að prófa aftur eitthvað nýtt. Þetta er gott næsta skref á mínum ferli, það er mikil handboltamenning í Mosó sem ég er spenntur fyrir og það sem ég hef saknað sem mest frá Selfossi."

Afturelding er sem stendur þjálfaralaust eftir að Stefáni Árnasyni var sagt upp störfum sem þjálfari liðsins. Hans Jörgen segir að það hafi engin áhrif á hann.

,,Ég var ekki að semja við Aftureldingu út af þjálfaranum heldur frekar út af leikmönnunum og félaginu sjálfu. Auðvitað er einhver óvissa með þjálfaramálið en ég hef fulla trú á því að stjórnin finni rétta manninn í starfið," sagði Hans Jörgen en fyrrum þjálfari hans hjá Stjörnunni, Hrannar Guðmundsson hefur sterklega verið orðaður við starfið.

En hvernig gerir hann upp tímann sinn hjá Stjörnunni?

,,Mér fannst ég læra mikið á þessum tíma, bæði á leikinn og á sjálfan mig. Fannst ég finna svona mitt “identity” eða það sem greinir mig frá öðrum. Ég fékk mjög mikinn spiltíma og öðlaðist mikla reynslu á því, fékk að gera mistök sem að ég lærði af. Hópurinn var líka frábær, skemmtilegir strákar sem var auðvelt að tengja við. Það var gaman að fá að spila til úrslita í bikarnum og fá að taka þátt í tveimur Evrópuleikjum."

,,Mér fannst tímabilið vera mjög langt og strembið. Það tók alveg á að vinna ekki leik í svona langan tíma, en mér fannst við samt aldrei missa hausinn. Við vorum eiginlega bara sjálfum okkur verstir og sérstaklega í nokkrum leikjum þar sem að við áttum að vinna. Við lendum líka í því að missa marga leikmenn í meiðsli í gegnum allt tímabilið og málaði það dáldið tímabilið hjá okkur. Vegna meiðslanna þurfti ég að spila margar mínútur í hverjum leik og var það farið að taka sinn toll undir lok tímabilsins. Mér fannst líka flott hjá okkur að klára umspilið og ná að halda liðinu uppi í efstu deild þar sem Stjarnan á heima. Það má einnig ekki gleyma því að við urðum meistarar meistaranna og spiluðum tvo góða Evrópuleiki," sagði Hans Jörgen en Stjarnan tapaði öllum ellefu leikjum sínum í seinni umferðinni.

Kom til greina að vera áfram hjá Stjörnunni?

,,Það voru alveg nokkur atriði sem ég var að velta fyrir mér varðandi næstu skref á mínum ferli. Það kom alveg til greina að vera áfram en að lokum fannst mér ég þurfa aðra áskorun."

,,Ég var í samræðum við Aftureldingu undir lok tímabils og fljótlega náðum við samningi okkar á milli."

En hvernig sér hann hlutverk sitt í nýju liði?

,,Ég sé mig vera að berjast meira um mínútur hjá Aftureldingu heldur en það sem ég hef verið að gera. Ég er alls ekki að fara labba beint í byrjunarliðið heldur þarf ég að vinna fyrir mínum spiltíma. Það er mikil samkeppni, margir flottir leikmenn sem að spila sömu stöðu og ég. Ég held að það muni samt gera bæði mig og liðið betra og líklegra til þess að vinna titla," sagði Hans Jörgen Ólafsson nýjasti leikmaður Aftureldingar í samtali við Handkastið.

Afturelding Handbolti

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top