Framarar gerðu upp tímabilið

Lokahóf Handknattleiksdeildar Fram var haldið síðastliðinn fimmtudag.

Leikmenn, stjórnarliðar, sjálfboðaliðar og styrktaraðilar komu saman og nutu veitinga frá Lúx Veitingum. Rent a Party hélt uppi skemmtun líka með krapvél og beerpong.

Verðlaun voru veitt fyrir að skara fram úr á tímabilinu sem og að ná áfangaleikjum.

Meistaraflokkur karla

Besti leikmaður: Ívar Logi Styrmisson
Mikilvægasti leikmaður: Breki Hrafn Árnason
Efnilegasti leikmaður: Max Emil Stenlund

Meistaraflokkur kvenna

Besti leikmaður: Harpa María Friðgeirsdóttir
Mikilvægasti leikmaður: Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín
Efnilegasti leikmaður: Dagmar Pálsdóttir

Þá hlaut Valgerður Arnalds viðurkenningu eftir að hafa spila yfir 100 leiki fyrir meistaraflokk

U-lið karla

Besti leikmaður: Arnþór Sævarsson
Haukur í horni: Alex Unnar Hallgrímsson

U-lið kvenna

Besti leikmaður: Sara Rún Gísladóttir
Haukur í horni: Arna Sif Jónsdóttir

Einnig voru þau Sunna Jónsdóttir og Rúnar Kárason kvödd og þakkað fyrir þjónustuna hjá félaginu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top