Meistaradeildin: Brotin hjörtu í Veszprém og Barca og Álaborg bóka miða til Kölnar
ANDRZEJ IWANCZUK / AFP

Þrír leikir fóru fram í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en um var að ræða síðari viðureigninar í einvígunum. Fuchse Berlin, Barca og Álaborg komust öll áfram og munu því spila á final four í Köln í júní.

Fuchse Berlin - Veszprém 35-33 (17-15) eftir vítakeppni
Fuchse Berlin voru komnir í kjörstöðu 6 mörkum yfir þegar um 20 mínútur voru liðnar af leiknum í kvöld en Veszprém náðu að klóra í bakkann og unnu sig aftur inn í leikinn. Leikurinn var í miklu jafnvægi eftir það og það var Hesham Elsayed Moham sem skoraði þrítugasta mark Veszprém á síðustu sekúndum leiksins og Berlin tókst ekki að skora. 31-30 lokastaðan og þurfti því að fara í vítakeppni þar sem Berlínarrefirnir höfðu betur.

Barca - HBC Nantes 31-21 (15-12)
Barca fóru nokkuð þægilega í gegnum Nantes og eru komnir í úrslitahelgina í 14 skiptið. Aleix Gómez var markahæstur hjá Barca með 10 mörk og Thibaud Briet var markahæstur hjá Nantes með 5 mörk. Viktor Gísli Hallgrímsson varði annað af þeim tveimur skotum sem hann fékk á sig.

Álaborg - Sporting 37-36 (18-17)
Háspenna lífshætta í leik Álaborgar og Sporting þar sem Álaborg unnu einvígið með einu marki og Sporting missir af sæti í Köln annað árið í röð. Orri Freyr Þorkelsson skoraði eitt mark í kvöld og reyndist það vera síðasta mark leiksins sem dugði þó Sporting ekki til.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top