

Úlfar Páll Monsi Þórðarson og liðsfélagar hans í Alkaloid í Norður-Makedóníu töpuðu sínum þriðja leik í röð í gær þegar liðið tapaði á heimavelli gegn Ohrid 26-27 í hörkuleik. Ohrid hafði fimm marka forystu í hálfleik 12-17 en Alkaloid var að elta allan leikinn og náði aldrei að jafna metin í seinni hálfleik. Ohrid var 24-27 yfir þegar lítið var eftir en Alkaloid skoruðu tvö síðustu mörk leiksins en lengra komust þeir ekki. Úlfar Páll Monsi sem gekk í raðir Alkaloid frá Val í sumar skoraði þrjú mörk úr þremur skotum í leiknum en liðið á þrjá leiki eftir af tímabilinu og situr í 4.sæti deildarinnar. Eins og staðan er í dag er ólíklegt að liðið vinni sér inn þátttökurétt í Evrópudeildinni en 4.sætið gefur sæti í Evrópubikarnum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.