Jón Ómar kveður Hauka
Sævar Jónasson)

Í tilkynningu Hauka segir að Jón Ómar Gíslason og handknattleiksdeild Hauka hafi komist að samkomulagi um að Jón Ómar kveðji Hauka núna í sumar. Jón Ómar kom til liðs við Hauka fyrir tímabilið frá Gróttu og átti stóran þátt í Bikarmeistaratitli meistaraflokks karla á tímabilinu þegar hann skoraði úrslitamarkið í vítakeppni liðsins gegn Val í 16-liða úrslitum.

Haukar þakka Jóni Ómari fyrir sitt framlag til félagsins og óska honum velfarnaðar í framhaldinu á sínum handknattleiksferli. Takk Jón Ómar!

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top