Einn leikur fór fram í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær þegar MAgeburg og Pick Szeged mættust í í síðari viðureign liðanna um sæti í final four í Köln. SC Magdeburg - Pick Szeged 45-37 (23-19) Ómar Ingi Magnússon var markahæstur með 8 mörk, Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 5 og Elvar Örn Jónsson skoraði 2 mörk. Hér eru hápunktar úr leiknum frá því í gærkvöldi.
Það var ærið verkefni sem beið Janusi Daða Smárasonar og félaga þegar þeir mættu Til Þýskalands til þess að reyna að vinna upp 7 marka mun eftir 35-28 tap í fyrri leiknum. Janus Daði var markahæstur í liði Pick Szeged í kvöld með 7 mörk en það var því miður ekki nóg. Íslenska þríeykið í Magdeburg verður því aftur í Köln og get varið titilinn frá því í fyrra.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.