Upp er komin snúin staða í þýska handboltanum en með nýju og umdeildu regluverki EHF fyrir Meistaradeildina næsta tímabil er THW Kiel komið í mjög skrítna stöðu fyrir stórleikinn gegn Füchse Berlin á morgun. Kiel á ekki lengur möguleika á að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni í gegnum Bundesliguna þar sem annað sætið er úr seilingarfjarlægð. Eina leið félagsins inn í keppnina er því að vinna Evrópudeildina en þar vandast málið. Samkvæmt reglum EHF dugir Evrópudeildartitillinn ekki endilega til. Til þess að sigurvegari Evrópudeildarinnar fái sæti í Meistaradeildinni þarf annað tveggja að gerast: annaðhvort þarf sigurvegari Meistaradeildarinnar að koma frá öðru landi – eða enda í topp tveimur sætunum í sinni heimadeild. Ein sviðsmyndin eins og hun er í dag er sú að Füchse Berlin vinni Meistaradeildina en endi í þriðja sæti Bundesligunnar. Gerist það lokast leiðin fyrir Kiel — og einnig MT Melsungen — inn í Meistaradeildina, jafnvel þó liðin vinni Evrópudeildina. Þar með er komin upp sú gala staða að THW Kiel hefur í raun hag af því að tapa fyrir Berlin á morgun til að auka líkurnar á að Füchse Berlin nái 2.sæti deildarinnar. Sama staða gæti svo komið upp hjá Melsungen þegar liðið mætir Berlin þann 4. júní. Leikmenn og forráðamenn SG Flensburg-Handewitt munu fylgjast grannt með þessu en þeir sitja sem stendur í 2.sæti deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.