
Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins Valur - ÍBV (Laugardagur 17:00) / Sigurvegari: Valur Úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn geta ráðist í dag. Valskonur er 2-0 yfir gegn ÍBV í einvíginu um titilinn og geta unnið hann á heimavelli. Það hefur verið mikið rætt og ritað um þetta einvígi undanfarna daga en af neikvæðum toga. Ég vona að handboltinn verði í aðalatriði í dag. Valskonur hafa sýnt mikinn styrk í þessum fyrstu tveim leikjum og ég held að það verði sama uppá teningnum í dag. Valsvörnin mun fara í gang með Hafdísi fyrir aftan sig og sigla Íslandsmeistaratitlinum í höfn með öruggum 4-5 marka sigri.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.