Útilokar ekki að þjálfa í bestu deild í heimi
Anke Waelischmiller/SVEN SIMON / SVEN SIMON / dpa Picture-Alliance via AFP

Talant Dujshebaev sem hætti á dögunum sem þjálfari pólska félagsins, Kielce eftir tólf ár þar í starfi útilokar ekki að þjálfa í þýsku Bundesligunni eftir að hann hætti hjá Kielce.

Talant staðfestir að nokkur þýsk félög hafi haft samband við hann. Í erlendum miðlum er sagt frá því að það sé raunverulegur möguleiki að Talant Dujshebaev taki við liði í þýsku Bundesligunni einn daginn.

Talant starfar nú eingöngu sem landsliðsþjálfari Frakklands. Hann segist samt ekkert fara í felur með það að hann safni daglegs lífs sem þjálfari félagsliðs.

,,Mig langar að vinna aftur hjá félagi og berjast um titla,“ segir Dujshebaev við handball-world.

Hann nýtur nú rólegrar tíma fjarri álagsins sem tengist handboltanum og er nú í Belgrad hjá vini sínum Raul Gonzalez, sem er þjálfari Partizan og landsliðsþjálfari Serbíu. Talant segir að eiginkona hans vonist til þess að hann taki sér ársfrí frá félags handbolta, efast Dujshebaev sjálfur um að það gerist.

,,Konan mín vill að ég taki mér ársfrí frá félagshandbolta. En ég er ekki viss um að ég geti það,“ sagði hann og hló.

Á sama tíma opnar hann greinilega dyrnar að mögulegu starfi í þýsku Bundesligunni.

„Af hverju ekki? Dyrnar mínar eru opnar. Ég er tilbúinn í hvað sem er."

Áhuginn frá Þýskalandi virðist einnig vera áþreifanlegur. Þegar Dujshebaev er spurður hvort félög í Bundesligunni hafi þegar haft samband svarar hann stuttlega og ákveðið: „Já.“

Synir hans, Alex og Daniel Dujshebaev, eru báðir að flytja til Þýskalands í sumar og leika í þýsku Bundesligunni á næsta tímabili. Alex Dujshebaev gengur í raðir VfL Gummersbach en Daniel Dujshebaev skiptir yfir til MT Melsungen.

Að sögn Dujshebaev er boltinn nú hjá umboðsmanni hans sem sér um að sjá um viðræður við áhugasöm félög og búist er við að fyrrverandi þjálfari Kielce taki ekki ákvörðun um framtíð sína fyrr en eftir tímabilið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top